Verkefnaáætlun UNESCO
UNESCO starfar á sviði:
- menntamála
- náttúru- og félagsvísinda
- menningarmála
- fjölmiðlamála og upplýsingatækni
Verkefna- og fjárhagsáætlun UNESCO er samþykkt af aðalráðstefnu UNESCO til tveggja ára í senn.
Framlag hvers aðildarlands fer eftir heildarlandsframleiðslu og íbúafjölda. Á árinu 2010 greiddi Ísland 18 milljónir kr. eða 0.03% af fjárlögum UNESCO.


