Fréttir

164. fundur stjórnarnefndar UNESCO

18.4.2002

Dagana 13.-30. maí nk. verður haldinn í höfuðstöðvum UNESCO í París 164. fundur stjórnarnefndar UNESCO. Sveinn Einarsson, formaður Íslensku UNESCO-nefndarinnar og fulltrúi Íslands í stjórnarnefndinni og fulltrúar fastanefndar Íslands hjá UNESCO sitja fundinn.

Fulltrúi Íslands var kosinn í stjórnarnefnd UNESCO til fjögurra ára á 31. aðalráðstefnu stofnunarinnar sem haldin var í París 15. október til 3. nóvember 2001. Ísland hefur einu sinni áður átt sæti í framkvæmdastjórninni þegar Andri Ísaksson, prófessor, sat þar á árunum 1983-1987. Í stjórnarnefndinni eru 58 fulltrúar frá öllum heimshornum, en aðildarlönd UNESCO eru 189. Helmingur stjórnarmanna er kosinn á hverri aðalráðstefnu sem haldin er annað hvert ár. Stjórnarnefndin heldur fundi tvisvar á ári og stjórnar starfi stofnunarinnar á milli aðalráðstefna. Fulltrúi Íslands er eini norræni fulltrúinn í stjórnarnefndinni.



 





Önnur vefsvæði