Fréttir
Vefur Íslensku UNESCO-nefndarinnar opnaður
Um skeið hefur verið á döfinni hjá Íslensku UNESCO-nefndinni að opna vefsíðu á íslensku og ensku. Fyrstu skref eru nú stigin og er ætlunin að bæta við efni eftir því sem aðstæður leyfa. Vefsíðan verður á íslensku og ensku, en sem stendur er einungis íslenski hlutinn kominn í gagnið að takmörkuðu leyti. Reynt verður að hafa tengingar í heimasíðu UNESCO eftir því sem við á hverju sinni.


